6. febrúar 2025
Fulltrúar sem sátu fundinn:
Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Bjarni Már Magnússon, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Helga Ögmundardóttir, Ingibjörg Svala Jónsdóttir, Stefán Þór Eysteinsson, Þorgerður María Þorbjarnardóttir.
Fundurinn var haldinn í Veðurstofu Íslands, kl. 12:00-14:00.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.
Fundargerð seinasta fundar
Fundargerð 78. fundar, sem haldinn var 16. janúar skoðast samþykkt.
Hagrænir hvatar og gjaldtaka í samhengi loftslagsmarkmiða
Á fundi Loftslagsráðs þann 29. nóvember 2024 var fjallað um stjórnarfrumvarp um kílómetragjald og kolefnisgjald á ökutæki sem sett var fram í samráðsgátt stjórnvalda stuttu áður. Komu fram áhyggjur af því að boðaðar breytingar hefðu ekki verið nægilega vel undirbúnar og myndi það hafa neikvæð áhrif á framgang orkuskipta í samgöngum.
Umræða hélt áfram á næsta fundi Loftslagsráðs, þann 13. desember, þar sem farið var m.a. yfir svar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um undirliggjandi greiningar og gögn og ákvað ráðið að bregðast við þeirri stöðu með því að leggja drög að áliti ræddi meginskilaboðin. Drög að áliti voru til umræðu á fundi 13. janúar og á þeim fundi ákveðið vinna áfram í álitinu. Var settur á fót vinnuhópur sem vann áfram í drögunum með framkvæmdastjóra á milli funda.
Á fundinum var unnið áfram í fyrirliggjandi drögum. Var framkvæmdastjórn fengið það verk að ljúka við álitið í samræmi við fyrirmæli ráðsins eftir fundinn með það að markmiði að ljúka verkinu í upphafi næstu viku.
Starfsáætlun
Auglýstum dagskrárlið var frestað til næsta fundar.
Önnur mál
Formaður og framkvæmdastjóri Loftslagsráðs sóttu vinnustofuna Climate Democracy: The Role of Independent Advisory Bodies and Courts in the EU. Þarna gafst gríðarlega gott tækifæri til að hitta önnur loftslagsráð og spegla viðgangsefni þeirra. Frásögn frá fundinum verður sett inn á Teams.
Ráðið var upplýst um fund framkvæmdastjórnar með nýjum ráðherra umhverfis-, orku, og loftslagsmála þann 5. febrúar. Óskað verður eftir því að ráðherra fundi með ráðinu.
