Álit loftslagsráðs á aðlögunaráætlun

Loftslagsráð hefur birt álit um áætlun stjórnvalda um aðlögun að loftslagsbreytingum. Ráðið undirstrikar að skerpa þurfi á áætluninni svo hún skili tilætluðum árangri við að draga úr tjónnæmi samfélagsins.

Álit Loftslagsráðs á atvinnustefnu forsætisráðuneytisins

Loftslagsráð hefur birt álit um drög forsætisráðuneytisins um atvinnustefnu, vaxtarplan til ársins 2035. Loftslagsráð hefur lagt áherslu á mikilvægi þróunar lágkolefnahagkerfis Íslands og fagnar því að atvinnustefna í þeim anda sé lögð fram.

Árangur næst með skýrum aðgerðum og heildarsýn

Í skýrslu OECD eru grandskoðaðar árangursgreiningar loftslagsráða í 15 löndum. Niðurstaðan er sú að þó svo margir þjóðir tileinki sér vissa þætti leiðangursmiðaðrar nálgunar, að þá vantar samt víðast hvar enn mjög mikið uppá að slíkt sé gert til hlýtar og af heilum hug.

Loftslagsmarkmið einstakra ríkja

Aðildaríkjaþing loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP30 stendur nú yfir í Belem í Brasilíu. Einungis 64 ríki, þar á meðal Ísland skiluðu sínum uppfærðu markmiðum í tæka tíð.

Loftslagsráð á COP30 í Brasilíu

COP30, þing aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna hófst í gær 10. nóvember Hvað er á dagskrá er spurt, um hvað er verið að semja. Í raun er árið í ár ekki beðið eftir stórum ákvörðunum þingsins. Það gefur ekki tilefni til bjartsýni að framsett framlög eru langt frá því að ná að halda hlýnuninni innan marka.

Landsframlag Íslands til 2035

Loftslagsráð samþykkti á fundi sínum 4. nóvember álit undir yfirskriftinni Landsframlag Íslands 2035. Það er því fagnaðarefni að Ísland hefur lagt fram landsframlag til Parísarsamningsins fram til 2035. Að mati ráðsins eru þó tækifæri til að gera betur.

Tímamótaálit Alþjóðadómstólsins

Hvaða rétt hafa almennir borgarar, framtíðarkynslóðir og önnur ríki gagnvart ríkjum sem láta hjá líða að bregðast við loftslagsbreytingum með fullnægandi hætti? Fyrir liggur að loftslagsbreytingar munu hafa, og hafa haft nú þegar, veruleg áhrif á hagi og heilsu fólks.

Gríðarleg áhrif loftslagsbreytinga í Ástralíu

Um ein og hálf milljón Ástrala búa á svæðum sem eru í verulegri hættu út af hækkandi sjávarmáli. Þetta kemur fram í nýju áhættumati vegna loftslagsbreytinga sem yfirvöld í Ástralíu hafa nú gefið út í fyrsta skipti.

Norðmenn ætla að minnka losun um allt að 75%

Norsk yfirvöld hafa lýst því yfir að þau stefni að því að draga úr nettólosun um að minnsta kosti 70 til 75% fyrir 2035, miðað við losun árið 1990 og er það töluvert hærra en núgildandi markmið Noregs um að minnsta kosti 55% samdrátt fyrir árið 2030.

Metnaðarfull loftslagsmarkmið auka hagvöxt

Loftslagsráð samþykkti á fundi sínum 12. júní álit undir yfirskriftinni Tímamót í loftslagsaðgerðum. Að mati Loftslagsáðs eru þau þáttaskil í framkvæmd loftlagsaðgerða, sem ráðið...

Hlutverk og skipan Loftslagsráðs

Loftslagsráð er sjálfstætt starfandi ráð sem hefur það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald með faglegri ráðgjöf um loftslagsmál. Þá er hlutverk ráðsins einnig að hafa yfirsýn yfir fræðslu og miðlun upplýsinga um loftslagsmál til almennings.

Loftslagsráð sinnir hlutverki sínu með því að rýna áætlanir stjórnvalda sem snerta loftslagsmál, stuðla að upplýstri umræðu um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu sem og ráðgjöf um aðlögun að loftslagsbreytingum. Þá stendur Loftslagsráð fyrir fræðsla og miðlun upplýsinga, t.d. með skipulagningu eða þátttöku í málstofum og öðrum viðburðum um loftslagstengd málefni.