Álit Loftslagsráðs um Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum
13. nóvember, 2024

Loftslagsráð hefur tekið uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum til  umfjöllunar eins og því ber lögum samkvæmt.

Það er mikið í húfi fyrir Ísland að samstarf ríkja í baráttunni við loftslagsvandann skili árangri hratt og örugglega.

Nauðsynlegt er að Ísland hraði samdrætti í losun og bindi meira koldíoxíð samliða undirbúningi fyrir afleiðingar loftslagsröskunar með markvissri aðlögun.

Helstu ábendingar:

Þrátt fyrir endurskoðun er aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ómarkviss. Skerpa þarf heildarstefnuna, samþætta ólíkar aðgerðir og samhæfa framkvæmdina við stefnumið í orku-, samgöngu-, matvæla- og ríkisfjármálum. Framkvæmd áætlunarinnar er ekki áfangaskipt með skýrum hætti, ábyrgð er oft óljós og margar aðgerðir ófjármagnaðar. Þessir veikleikar munu tefja framkvæmd, forgangsröðun og ráðstöfun fjármuna.

Í ljósi ofangreindra veikleika telur Loftslagsráð árangursmatið afar bjartsýnt.

Því ber að fagna að settar séu fram 150 hugsanlegar og raunverulegar aðgerðir í loftslagsmálum sem endurspeglar mikinn áhuga og vilja innan Stjórnarráðsins, í atvinnu- og viðskiptalífinu og meðal sveitarfélaga. Margar þeirra eru stuðningsaðgerðir sem eru ómissandi þegar kemur að því að skapa eflandi umhverfi og greiða fyrir nýsköpun.

Lögum samkvæmt ber stjórnvöldum að áætla kostnað við aðgerðir og meta loftslagsávinning þeirra. Einungis 26 aðgerðir hafa verið metnar með tilliti til loftslagsávinnings og engin með tilliti til kostnaðar og ábata. Vinna þarf heildstætt mat á kostnaði og ábata, árangri og fjárfestingaþörf sem einnig beinist að þjóðhagslegum kostnaðarauka vegna tafa í framkvæmd eða skorti á samfellu og fyrirsjáanleika í hvatakerfum eða opinberum gjöldum.

Niðurstaða Loftslagsráðs er sú að nú þurfi að verða þáttaskil í framkvæmd loftslagsaðgerða. Skýr og hugrökk langtímasýn þarf að liggja til grundvallar ákvarðanatöku og ákvarðanir allra ráðherra næstu ríkisstjórnar þurfa að leggjast á eitt. Ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar sem horfast í augu við vandann munu standa betur að vígi og vera betur undirbúin undir þær áskoranir sem fram undan eru.

Skoða álitið í heild sinni hér.